Nolan samdi við Newcastle

Kevin Nolan fagnar marki með Bolton.
Kevin Nolan fagnar marki með Bolton. Reuters

Knattspyrnumaðurinn Kevin Nolan skrifaði nú í hádeginu undir fjögurra og hálfs árs samning við enska úrvalsdeildarliðið Newcastle. Nolan kemur til Newcastle frá Bolton og greiddi félagið 4 milljónir punda fyrir miðjumanninn sterka eða sem svarar 650 milljónum íslenskra króna.

,,Þetta gerðist allt svo snöggt en þetta var tækifæri sem var ekki hægt að hafna. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir framan frábæra stuðningsmenn félagsins og ég hlakka til næstu ára,“ sagði Nolan á heimasíðu Newcastle eftir að hafa skrifað undir samning við félagið.

Nolan er 26 ára gamall og hefur verið í herbúðum Bolton frá árinu 1997. Hann hefur spilað 296 deildarleiki með liðinu og hefur skorað í þeim 40 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert