Keane aftur til Tottenham

Robbie Keane í búningi Tottenham.
Robbie Keane í búningi Tottenham. Reuters

Liverpool hefur samþykkt að selja Tottenham írska framherjann Robbie Keane. Þetta er staðfest á vef Liverpool en ekki kemur fram hvert kaupverðið er. Talið er að Tottenham greiði 15 milljónir punda fyrir Keane sem fór frá liðinu til Liverpool fyrir hálfu ári á 20 milljónir punda.

Keane, sem hefur haldið með Liverpool frá unga aldri, hefur ekki náð sér á strik með Liverpool-liðinu á tímabilinu en hann hefur aðeins náð að skora 5 mörk í 19 leikjum með því.

Hann var ekki valinn í leikmannahópinn sem mætti Chelsea á Anfield í gær og þar með þótti nokkuð ljóst að hann ætti ekki lengur framtíð hjá þeim rauðklæddu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert