Aston Villa áfrýjar brottrekstri Friedels

Rautt spjald og vítaspyrna. Fernando Torres fellur eftir viðskipti við …
Rautt spjald og vítaspyrna. Fernando Torres fellur eftir viðskipti við Brad Friedel. Reuters

Aston Villa hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem markvörðurinn Brad Fridel fékk að líta í leik Liverpool og Aston Villa á Anfield í gær. Friedel var rekinn af velli á 64. mínútu eftir að hafa lent í samstuði við Fernando Torres í vítateignu,.

Martin Atkinson dró rauða spjaldið upp úr vasa sínum og dæmdi að auki vítaspyrnu sem Steven Gerrard skoraði úr af öryggi.

Friedel á yfir höfði sér eins leiks bann vegna brottvísunarinnar og missir af leiknum gegn Englandsmeisturum Manchester United á Old Trafford þann 5. apríl nema að aganefndin verði við ósk Villa og felli niður rauða spjaldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert