John Terry: Ekki komnir á HM en erum á góðri leið

John Terry fagnar Gareth Barry sem kom Englendingum á bragðið.
John Terry fagnar Gareth Barry sem kom Englendingum á bragðið. Reuters

John Terry fyrirliði enska landsliðsins segir að England sé ekki öruggt með sæti á HM en sé á góðri leið eftir sigurinn á Kasakstan í dag. ,,Þetta var frábær sigur og mikilvægur á þeirri leið sem sem við stefnum á. Þetta var erfiður leikur og við vorum undirbúnir undir að þetta erfitt strembið fyrstu 40-50 mínúturnar," sagði Terry.

,,Ég verð að hrósa liðinu fyrir góða frammistöðu og að vera búnir að vinna alla sex leikina er frábær árangur.  En við erum ekki búnir að tryggja okkur farseðilinn á HM ennþá. Við fáum Andorra í heimsókn í næsta leik og það gæti orðið erfiður leikur því Andorramenn koma örugglega til með að liggja til baka,“ sagði Terry,



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert