Ronaldo gerir sex ára samning

Cristiano Ronaldo skrifar undir hjá Real Madrid 1. júlí.
Cristiano Ronaldo skrifar undir hjá Real Madrid 1. júlí. Reuters

Manchester United staðfesti í kvöld að gengið hefði verið frá sölunni á Cristiano Ronaldo til Real Madrid fyrir 80 milljónir punda. Real Madrid staðfesti jafnframt að Ronaldo myndi skrifa undir sex ára samning við félagið, frá honum verið gengið 1. júlí og kappinn verði kynntur á Santiago Bernabeu leikvanginum þann 6. júlí.

Þar með eru málin komin endanlega á hreint varðandi portúgalska snillinginn sem verður dýrasti knattspyrnumaður heims.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert