Peter Crouch genginn til liðs við Tottenham

Crouch í hvítum búningi Englands gegn Andorra að fagna marki …
Crouch í hvítum búningi Englands gegn Andorra að fagna marki sínu. Reuters

Hinn hávaxni framherji Portsmouth og Englands, Peter Crouch, gekk í kvöld til liðs við Tottenham. Kaupverðið er talið í kringum 10 milljónir punda og gerir hann fimm ára samning við félagið, sem tryggir honum 70.000 pund í vikulaun, samkvæmt BBC.

„Salan á Crouch var nauðsynleg til að endurgreiða skuldir meðan að félagið er í yfirtökuferli,“ sagði talmaður félagins á heimasíðu þess.

Crouch gerði alls 16 mörk fyrir Portsmouth á síðustu leiktíð og er hann sagður eiga að fylla skarð Darren Bent, sem ku vera á leið til Sunderland.

Er þetta þriðja félagið þar sem Crouch spilar undir stjórn Harry Redknapp, fyrst hjá Southampton, síðar hjá Portsmouth og nú hjá Tottenham.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert