Capello segir Beckham að spila í Evrópu

Beckham í æfingaleik Galaxy gegn AC Milan í sumar.
Beckham í æfingaleik Galaxy gegn AC Milan í sumar. Reuters

Fabio Capello, landsliðseinvaldur Englands, segir að David Beckham, leikmaður LA GAlaxy í Bandaríkjunum, verði að spila í Evrópu ætli hann sér að eiga sæti í landsliði Englands á HM í Suður Afríku á næsta ári.

„Beckham veit að ef hann snýr ekki aftur til Evrópu í desember, þá á hann enga möguleika á að spila á HM,“ sagði Capello við La Gazzetta dello Sport.

Beckham, sem er 34 ára gamall, hefur sagst opinn fyrir því að snúa aftur til Englands, en AC Milan er talið vilja halda dyrunum opnum fyri leikmanninum, eftir að hann stóð sig vel með liðinu á síðustu leiktíð hvar hann var á láni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert