Arsenal rótburstaði Everton á Goodison Park

Marouane Fellaini og Thomas Vermaelen í baráttunni á Goodison Park.
Marouane Fellaini og Thomas Vermaelen í baráttunni á Goodison Park. Reuters

Arsenal fór hreinlega á kostum þegar liðið gjörsigraði Everton á Goodison Park í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Strákarnir hans Arsene Wengers léku liðsmenn Everton grátt og áttu þeir ekkert svar við stórleik Lundúnaliðsins en staðan í leikhléi var, 3:0. Cesc Fabregas skoraði tvö af mörkum Arsenal og þeir William Gallas, Denilson, Vermaelen og Eduardo da Silva gerðu eitt mark hver. Louis Saha skoraði mark Everton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert