Manchester United á stærsta sigurinn

Andy Cole skoraði fimmu þegar United skellti Ipswich, 9:0, árið …
Andy Cole skoraði fimmu þegar United skellti Ipswich, 9:0, árið 1995. Reuters

Þrátt fyrir risasigur Tottenham á Wigan í dag, 9:1, er það ekki stærsti sigur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. 9:0 sigur Manchester United á Ipswich árið 1995 er stærsti sigurinn og í þeim leik skoraði Andy Cole fimm mörk. Þá skellti Newcastle liði Sheffield Wednesday, 8:0, árið 1999 þar sem Aan Shearer setti fimm mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert