Carvalho: Erum betri en liðið sem lék undir stjórn Mourinho

Carvalho í baráttu við Sami Nasri í leik Chelsea og …
Carvalho í baráttu við Sami Nasri í leik Chelsea og Arsenal. Reuters

Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho leikmaður Chelsea segir að liðið sé betra nú en þegar það hampaði Englandsmeistaratitlinum undir stjórn Jose Mourinho.

,,Ég tel að það séu meiri gæði í liðinu núna. Í það minnsta eru aðrir leikmenn sem spila öðruvísi leikkerfi. Mér finnst liðið í framför frá fyrsta árinu undir stjórn Mourinho. Við höfum spilað vel, erum að fá lítið af mörkum á okkur og erum á toppnum“ segir Carvalho á vef félagsins.

Chelsea er með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og er búið að tryggja sér þátttökurétt í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Björgvin Ólafur Gunnarsson:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert