Palacios fluttur á sjúkrahús

Palacios fagnar með Jermain Defoe.
Palacios fagnar með Jermain Defoe. Reuters

Wilson Palacios miðjumaðurinn öflugi hjá Tottenham var fluttur á sjúkrahús eftir leik liðsins gegn Everton í dag. Palacios fékk þungt högg á síðuna þegar Tony Hibbert braut á honum innan vítateigsins á lokamínútunum en Jermain Doefe náði ekki að skora úr vítinu.

Hondúrasinn var mjög kvalinn þegar hann var borinn af leikvelli en óttast er að hann hafi brákast á rifbeini.  Palacios hefur átt góðu gengi að fagna með Lundúnaliðinu frá því hann gekk í raðir þess frá Wigan fyrir 12 milljónir punda og það yrði slæmt fyrir Tottenham ef hann yrði frá keppni í einhvern tíma.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert