Gunnar Heiðar ekki með Reading á Anfield

Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gunnar Heiðar Þorvaldsson bíður enn eftir því að fá leikheimild með enska 1. deildarliðinu Reading að því er fram kemur í enska blaðinu Reading Post en Gunnar gekk í raðir Íslendingaliðsins nú um áramótin þar sem hann verður í láni frá danska liðinu Esbjerg út leiktíðina.

Reading tekur á móti Newcastle í deildinni á sunnudaginn svo leikheimildin þarf að berast á næstu tveimur dögum ætli Eyjamaðurinn að vera með í þeim leik.

Hins vegar er ljóst að Gunnar leikur ekki á Anfield í næstu þegar Reading sækir Liverpool heim í endurteknum bikarleik. Hann er ekki löglegur í þeim leik þar sem ekki tókst að skrá nafn í tæka tíð fyrir fyrri leikinn gegn Liverpool á Madjeski Stadium sem endaði 1:1 um síðustu helgi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert