Chamakh vill fara til Arsenal

Marouane Chamakh fagnar marki með Bordeaux.
Marouane Chamakh fagnar marki með Bordeaux. Reuters

Marokkómaðurinn Marouane Chamakh, framherji franska liðsins Bordeaux, hefur upplýst að hann vilji ganga til liðs við Arsenal þegar samningur hans við Bordeaux rennur út í sumar.

Chamakh hefur verið mjög eftirsóttur og reyndi Arsenal að kaupa hann síðastliðið sumar en náði ekki samkomulagi við Bordeaux um kaupverðið. Liverpool, Tottenham, Chelsea g Everton hafa öll haft samband við umboðsmann leikmannsins sem og ítöslu liðin Inter og Juventus en vilji Chamakh er að fara til Arsenal. 



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert