Fabregas með á ný

Cesc Fabregas skorar gegn Burnley en hann þurfti síðan að …
Cesc Fabregas skorar gegn Burnley en hann þurfti síðan að fara af velli. Reuters

Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, hefur jafnað sig af meiðslum og gert er ráð fyrir að hann komi inní liðið á ný þegar það mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun.

Fabregas tognaði í læri fyrir tveimur vikum, í leik gegn Burnley, og missti af 5:0 sigrinum á Porto í Meistaradeild Evrópu og 2:1 sigrinum á Hull í úrvalsdeildinni síðasta laugardag. Hann æfði með Arsenal í dag og kenndi sér einskis meins.

Tomás Rosický hefur jafnað sig af nárameiðslum og Alex Song er laus úr leikbanni, þannig að Arsene Wenger hefur úr fleiri leikmönnum að velja en í síðustu leikjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert