Macheda vonast eftir fleiri tækifærum

Federico Macheda fagnar marki ásamt Darren Fletcher í nótt.
Federico Macheda fagnar marki ásamt Darren Fletcher í nótt. Reuters

Framherjinn Federico Macheda vonast til að fá fleiri tækifæri með aðalliði Manchester United á komandi leiktíð en Ítalinn skoraði tvö mörk fyrir United í 5:2 sigri á stjörnuliði bandarísku MLS-deildarinnar síðastliðna nótt.

Þessi 18 ára gamli sóknarmaðurinn kom fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði mikilvæg mörk á lokaspretti leiktíðarinnar fyrir tveimur árum en var lítið áberandi á síðustu leiktíð. 

,,Ég er tilbúinn og vonast til að stjórinn tefli mér fram í fleiri leikjum. Ég held að þetta geti orðið mitt ár. Ég er búinn að spila alla leikina á undirbúningstímabilinu og það var ánægjulegt að skora þessi mörk. Ég vildi sýna öllum að ég er tilbúinn í slaginn,“ sagði Macheda.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert