Aðgerðin á Valencia heppnaðist vel

Antonio Valencia í leik með Manchester United.
Antonio Valencia í leik með Manchester United. Reuters

Forráðamenn Manchester United greindu frá því í dag að aðgerðin sem Ekvadorinn Antonio Valencia gekkst undir í gær hafi tekist mjög vel en leikmaðurinn ökklabrotnaði og sleit liðbönd að auki í viðureign Manchester United og Rangers í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.

Að því er fram kemur á vef Manchester United er reiknað með því að Valencia verði frá keppni stóran hluta tímabilsins.

„Aðgerðin heppnaðist vel. Stálplötu var komið fyrir við brotið og þá urðu verulegar skemmdir á liðböndum. Hann kemur til með að missa stóran hluta tímabilsins en Antonio líður vel og er afar jákvæður,“ segir talsmaður United á vef félagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert