Tottenham neitað um Andy Carroll

Andy Carroll í leik með Newcastle gegn Man.Utd.
Andy Carroll í leik með Newcastle gegn Man.Utd. Reuters

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Newcastle hafa hafnað beiðni Tottenham um viðræður um kaup á markaskoraranum unga Andy Carroll og segja að hann sé alls ekki til sölu. Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Í morgun skýrði götublaðið The Sun frá því að Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham hefði sett sig í samband við Newcastle með það fyrir augum að gera félaginu tilboð í hinn 21 árs gamla Carroll, sem hefur skorað 11 mörk í úrvalsdeildinni í vetur.

Talið er að Newcastle myndi vilja fá um 30 milljónir punda fyrir Carroll en fyrst og fremst sé hann ekki til sölu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert