Matthías ekki með Colchester

Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson. mbl.isEggert Jóhannesson

Matthías Vilhjálmsson var ekki í leikmannahópi enska 2. deildarliðsins Colchester í kvöld þegar liðið sigraði Bournemouth, 2:1. Matthías er í láni hjá Colchester frá FH fram til 1. apríl en fyrir þann tíma þarf enska liðið að ákveða hvort það nýti sér ákvæði um kaup á leikmanninum.

John Ward, knattspyrnustjóri Colchester, sagði í gær að leikurinn við  Bournemouth væri aðeins of snemma á ferðinni fyrir Matthías sem hóf æfingar með liðinu í vikunni, vegna þess að hann væri búinn að vera í löngu vetrarfríi á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert