Ívar í sigurliði Reading

Ívar Ingimarsson leiðir sína menn í Reading inná völlinn.
Ívar Ingimarsson leiðir sína menn í Reading inná völlinn. www.readingfc.co.uk

Ívar Ingimarsson var í sigurliði Reading sem lagði Doncaster að velli, 3:0, í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Ívar kom inn í lið Reading eftir tæplega eins árs fjarveru og bar fyrirliðabandið. Brynjar Björn Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Reading.

Aron Einar Gunnarsson lék allan tímann með Coventry sem gerði markalaust jafntefli við Sheffield United á heimavelli.

Heiðar Helguson lék 10 síðustu mínúturnar fyrir QPR sem gerði markalaust jafntefli við Burnley á útivelli.

Hermann Hreiðarsson kom inná í liði Portsmouth á 81. mínútu en þá hafði liðið 1:0 yfir gegn Nottingham Forest á útivelli. Heimamenn náðu hins vegar að knýja fram sigur með tveimur mörkum á lokamínútum leiksins.

Í 2. deildinni lék Ármann Smár Björnsson allan tímann með Hartlepool sem tapaði á heimavelli fyrir Degenham, 1:0.

Jóhannes Karl Guðjónsson sat á bekknum allan tímann hjá Huddersfield sem lagði Walsall, 4:2, á útivelli.

Kári Árnason spilaði allan tímann með Plymouth sem tapaði fyrir Oldham á heimavelli, 2:0.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert