Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 28.1.2012
| 19:42
| Uppfært
29.1.2012
17:39
Brighton sló Newcastle út
Strákarnir hans Gus Poyet í B-deildarliði Brighton gerðu sér lítið fyrir og slógu Newcastle úr leik í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar en liðin áttust við á heimavelli Brighton í kvöld.
Sigurmarkið kom á 76. mínútu og varð það sjálfsmark frá Mike Williamson sem réði úrslitunum. Newcastle fór illa með nokkur góð færi í leiknum og var að lokum refsað fyrir það.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






