Vill fá Balotelli til baka

IMario Balotelli.
IMario Balotelli. AFP

Massimo Moratti, forseti ítalska knattspyrnuliðsins Inter Mílanó, segist vilja fá ítalska framherjann til baka frá Manchester City.

Balotelli hefur leikið vel með Ítölum á Evrópumótinu og skoraði bæði mörk liðsins þegar það lagði Þjóðverja í undanúrslitunum á fimmtudaginn.

„Ég neita því ekki að ég er með áætlun um að fá hann aftur til Inter. Ég myndi glaður vilja gera annað tilboð í hann en Manchester City hefur rétt á að hafna því. Það vill halda honum,“ sagði Moratti við ítalska blaðið Gazzetta dello Sport.

„Ég er bæði glaður og stoltur yfir því hvað Balotelli hefur gert á EM. Ítalir elska hann þrátt fyrir að hann sé furðulegur. En hann hefur einstaka hæfileika og hefur sannað það á þessu móti,“ segir Moratti.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert