Jones frá keppni næstu tvær vikur

Phil Jones er meiddur.
Phil Jones er meiddur. AFP

Phil Jones, leikmaður Manchester United, verður frá keppi næstu tvær vikurnar eða svo vegna hnémeiðsla en þetta staðfesti David Moyes, knattspyrnustjóri liðsins, fyrir leikinn gegn Hull í dag.

Jones átti við ýmis meiðsli að stríða í byrjun leiktíðar en var búinn að byrja síðustu sjö leiki United í öllum keppnum og spila vel. Hann meiddist á æfingu í vikunni og verður eins og áður segir frá í það minnsta tvær vikur.

Það er því gott fyrir United að Darren Fletcher og Michael Carrick eru að koma til baka eftir veikindi og meiðsli. Fletcher byrjaði í 3:2-sigrinum gegn Hull í dag og Carrick kom inn á sem varamaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert