Dzeko efstur á óskalista Valencia

Edin Dzeko.
Edin Dzeko. AFP

Spænska knattspyrnuliðið Valencia hyggst reyna að fá Bosníumanninn Edin Dzeko til liðs við sig þegar opnað verður fyrir félagaskipti í næsta mánuði.

Dzeko hefur mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn talsvert mikið hjá Manchester City enda valinn maður í hverju rúmi í sókninni.

Spænska blaðið Marca segir að Dzeko sé efstur á óskalista Valencia en hann hefur aðeins byrjað inná í sex leikjum City í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Hann kemur á eftir Sergio Agüero og Alvaro Negredo í goggunarröðinni en þeir hafa farið á kostum með Manchester-liðinu á leiktíðinni. Agüero er reyndar á sjúkralistanum og verður væntanlega ekki leikfær fyrr en í febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert