Sterling fer hvergi

Raheem Sterling.
Raheem Sterling. AFP

Raheem Sterling hinn ungi og stórefnilegi leikmaður Liverpool er ekki á förum til Swansea sem lánsmaður en Sterling hefur verið orðaður við velska liðið undanfarna daga.

„Okkur var hlátur í huga þegar við heyrðum þann orðróm að Raheem Sterling væri á förum sem lánsmaður. Hann fer hvergi,“ sagði Colin Pascoe aðstoðarstjóri Liverpool á fréttamannafundi í dag.

Sterling, sem hefur átt fína leiki með Liverpool, var orðaður við Liverpool þegar félagið var sagt vera að fá kantmanninn Mohamed Salah frá svissneska liðinu Basel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert