Eiður byrjar en Heskey á bekknum

Eiður Smári í búningi Bolton.
Eiður Smári í búningi Bolton. Ljósmynd/bwfc.co.uk

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Bolton sem tekur á móti Blackburn í grannalag í ensku B-deildinni en leikur liðanna hefst klukkan 15.

Emile Heskey sem gekk í raðir Bolton á aðfangadag er á meðal varamanna en margir bíða spenntir að sjá hann og Eið Smára saman inni á vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert