Liverpool með Milner í sigtinu

James Milner.
James Milner. AFP

Liverpool er á höttunum eftir enska landsliðsmanninum James Milner að því er fram kemur í ensku blöðunum í dag.

Milner hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Englandsmeistara Manchester City en núgildandi samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool er sagður vera mjög áhugasamur að fá Milner í sínar raðir en enski landsliðsmaðurinn hefur verið hlutverki varamanns meira og minna eftir að kom til félagsins frá Aston Villa fyrir fjórum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert