Ætlum ekki að fá Balotelli

Mario Balotelli hefur átt afar erfitt uppdráttar hjá Liverpool.
Mario Balotelli hefur átt afar erfitt uppdráttar hjá Liverpool. AFP

Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, segir ekkert hæft í fréttum þess efnis að félagið hyggist fá ítalska framherjann Mario Balotelli frá Liverpool í þessum mánuði.

Balotelli hefur gengið skelfilega hjá Liverpool og aðeins skorað tvö mörk fyrir liðið síðan hann kom frá AC Milan fyrir 16 milljónir punda í ágúst. Hann á enn eftir að skora deildarmark.

Allegri stýrði Balotelli hjá Milan en segist ekki koma til með að endurnýja kynnin við framherjann á næstunni.

„Ég held að þessi frétt sé hreinn uppspuni. Balotelli hefur staðið sig mjög vel fyrir mig en hann er í eigu Liverpool og er ekki leikmaður sem getur komið til Juventus,“ sagði Allegri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka