„Costa er ógeðslegur“

Diego Costa getur þakkað sínum sæla fyrir það að hafa ekki fengið rautt spjald í leik Chelsea og Liverpool í enska deildabikarnum í kvöld. Hegðun framherjans féll illa í kramið hjá íslenskum knattspyrnuáhugamönnum á Twitter.

Costa traðkaði fólskulega á Emre Can í fyrri hálfleik leiksins og svo aftur á Martin Skrtel í seinni hálfleiknum, en slapp í bæði skiptin við svo mikið sem gult spjald. Hann fékk loks áminningu eftir ryskingar við Steven Gerrard.

Eftirfarandi ummæli voru á meðal þeirra sem féllu um Costa á Twitter á meðan á leik stóð í kvöld:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert