Hazard styður brottför Cech

Eden Hazard.
Eden Hazard. AFP

Eden Hazard styður liðsfélaga sinn hjá Chelsea, Petr Cech um að mögulega yfirgefa þá bláu í lok þessarar leiktíðar en þessi frábæri markvörður hefur þurft að þola mikla bekkjarsetu á tímabilinu þar sem Belginn Thibaut Courtois  hefur haft vinninginn um byrjunarliðssætið.

„Thibaut og Petr eru báðir mjög góðir og þegar þú ert á bekknum þá viltu auðvitað spila. Hann veit að hann hefur gæðin til að spila hjá toppklúbbi. Ef ég er góður leikmaður og er á bekknum þá vil ég fara, þetta er fótbolti,“ sagði Hazard.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert