Vissi ekki að ég væri svona skotharður

Charlie Adam á fullri ferð á Stamford Bridge í dag.
Charlie Adam á fullri ferð á Stamford Bridge í dag. AFP

Charlie Adam, miðjumaður Stoke City, sagði eftir leikinn við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld að hann hefði ekki talið sjálfan sig eins skotharðan og raun bara vitni, þegar hann skoraði mark af eigin vallarhelmingi gegn einum af bestu markvörðum heims, Thibaut Courtois.

„Ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði þennan skotkraft og það að skora hjá svona markverði á þennan hátt er dálítið sérstakt. Ég mun aldrei gleyma þessu marki. Ég sá að markvörðurinn stóð framarlega og var heppinn að þetta tókst," sagði Adam við BBC.

„Maður getur skorað svona mark einu sinni á ævinni og fyrir sjálfan mig var frábært að skora mitt 50. mark í ensku knattspyrnunni á þennan hátt, en liðið tapaði hinsvegar leiknum og það eru vonbrigðin," sagði Adam

Thibaut Courtois markvörður Chelsea sigraður eftir skotið frá Charlie Adam …
Thibaut Courtois markvörður Chelsea sigraður eftir skotið frá Charlie Adam af eigin vallarhelmingi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert