Agüero hreppti gullskóinn

Sergio Agüero fékk afhentan gullskóinn í dag.
Sergio Agüero fékk afhentan gullskóinn í dag. AFP

Argentínumaðurinn Sergio Agüero framherji Manchester City varð markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en leiktíðinni lauk í dag.

Agüero, sem skoraði síðara mark City í 2:0 sigri gegn Southampton í dag, skoraði samtals 26 mörk.

Þessir urðu markahæstir:

26 - Sergio Agüero, Manchester City
21 - Harry Kane, Tottenham
20 - Diego Costa, Chelsea
18 - Charlie Austin, QPR
17 - Alexis Sánchez, Arsenal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert