Liverpool samþykkir tilboð City í Sterling

Raheem Sterling.
Raheem Sterling. AFP

Liverpool samþykkti tilboð Manchester City í enska landsliðsmanninn Raheem Sterling í dag, samkvæmt Sky Sports.

Tilboð Manchester City er talið vera um 49 milljónir sterlingspunda með viðbótum. Næst munu Raheem Sterling og Manchester City semja um kaup og kjör og mun leikmaðurinn fara í læknisskoðun.

Sterling, sem er tvítugur, gekk til liðs við Liverpool árið 2012 og hefur leikið 95 leiki fyrir félagið en í byrjun sumars lét hann í ljós að hann vildi ekki endurnýja samning sinn við félagið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert