Mourinho kærður fyrir dómaraummælin

José Mourinho var ósáttur við dómarann í leiknum gegn Southampton …
José Mourinho var ósáttur við dómarann í leiknum gegn Southampton um helgina. AFP

José Mourinho hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu vegna þess sem hann sagði um dómarann Robert Madley eftir 3:1-tap Chelsea gegn Southampton um helgina.

Mourinho hélt því fram að Madley hefði svikið Chelsea um vítaspyrnu auk þess sem hann sagði dómara vera hrædda við að dæma vítaspyrnur á andstæðinga liðsins. Hann hefur nú tíma fram á fimmtudag til að svara fyrir sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert