Aron Einar byrjaði þriðja leikinn í röð

Aron Einar Gunnarsson er kominn í náðina hjá Cardiff City.
Aron Einar Gunnarsson er kominn í náðina hjá Cardiff City. Skapti Hallgrímsson

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Cardiff City þriðja leikinn í röð þegar Cardiff mætti Ipswich Town í 14. umferð ensku B-deildarinnar í knattspyrnu á Portman Road, heimavelli Ipswich í dag.

Leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Þetta var sjötti leikur Arons Einars í deildinni í vetur, en hann glímdi við meiðsli og var úti í kuldanum hjá liðinu í upphafi tímabilsins.

Cardiff eru taplausir í síðustu fimm leikjum liðsins í deildinni og sitja í áttunda sæti deildarinnar með 22 stig, tveimur stigum frá umspilssæti.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert