Zouma frá keppni í hálft ár

Kurt Zouma liggur meiddur á vellinum í leiknum við Manchester …
Kurt Zouma liggur meiddur á vellinum í leiknum við Manchester United og Juan Mata virðist hafa áttað sig á alvarleika málsins. AFP

Kurt Zouma miðvörður enska knattspyrnuliðsins Chelsea verður frá keppni næsta hálfa árið hið minnsta en nú er komið í ljós að hann sleit krossband í hné í leiknum við Manchester United í gær.

Zouma skýrði sjálfur frá þessu á Twitter fyrir stundu og upplýsti að myndatökur í dag hefðu leitt þetta í ljós.

Hann verður að óbreyttu ekki tilbúinn í slaginn þegar nýtt keppnistímabil hefst í ágúst. Zouma er 21 ára gamall Frakki sem kom til Chelsea frá Saint-Étienne árið 2014 og hefur spilað tvo landsleiki fyrir Frakkland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert