Liverpool ekki skorað meira í 121 ár

Leikmenn Liverpool fagna einu af fimm mörkum sínum í dag.
Leikmenn Liverpool fagna einu af fimm mörkum sínum í dag. AFP

Liverpool hefur ekki skorað fleiri mörk í fyrstu átta leikjum sínum á tímabilinu í hvorki meira né minna en 121 ár.

Liverpool er búið að skora 24 mörk í þessum átta leikjum; 16 í deildinni og 8 í enska deildabikarnum. Tímabilið 1896-1897 var Liverpool búið að skora 34 mörk eftir átta leiki á tímabilinu.

Liverpool vann í dag stórsigur á Hull, 5:1, og er í fjórða sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir forystusauðunum í Manchester City.

Næsti leikur Liverpool er gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum hans í Swansea í deildinni á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert