Styttist í endurkomu Schmeichels

Kasper Schmeichel.
Kasper Schmeichel. AFP

Claudio Ranieri knattspyrnustjóri Englandsmeistara Leicester City vonast til að endurheimta danska landsliðsmarkvörðinn Kasper Schmeichel fyrir jólatörnina.

Schmeichel hefur verið frá keppni í mánuð eftir að hafa handarbrotnað í markalausu jafntefli Leicester og FC Köbenhavn. Ekki er hægt að segja að Ron-Robert Zieler hafi fyllt skarð Danans í markinu neitt sérstaklega vel en hann hefur fengið á sig 16 mörk í átta leikjum og hefur aðeins tekist að halda marki sínu hreinu í einum leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert