Mourinho ánægður með Martial

Anthony Martial skorar þriðja mark United gegn West Ham.
Anthony Martial skorar þriðja mark United gegn West Ham. AFP

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, er ánægður með franska sóknarmanninn Anthony Martial en hann gerði tvö mörk í enska deildabikarnum á dögunum eftir að hafa verið utan hóps í leikjunum þar á undan.

Martial átti frábært fyrsta tímabil með United á síðustu leiktíð en hefur ekki tekist að fylgja því eftir undir stjórn Mourinho.

Franski landsliðsmaðurinn var tekinn úr hópnum eftir 1:1 jafnteflið gegn Arsenal en hann var mættur aftur í liðið í 4:1 sigrinum á West Ham United í 8-liða úrslitum bikarsins en Martial gerði þar tvö mörk.

„Martial er að leggja sig meira fram en hann gerði, svona ef ég á að vera hreinskilinn. Það hjálpar auðvitað að skora tvö mörk, þá kemur leikgleðin aftur,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert