Mourinho hvílir menn fyrir Tottenham-leikinn

Michael Carrick er á meðal þeirra leikmanna sem ekki spila …
Michael Carrick er á meðal þeirra leikmanna sem ekki spila í Úkraínu annað kvöld. AFP

José Mourinho tekur 19 leikmenn með sér til Úkraínu þar sem Manchester United mætir Zorya í lokaumferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu annað kvöld.

United þarf á einu stigi að halda til að tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum.

Michael Carrick, Matteo Darmian, Antonio Valencia, Memphis Depay og Morgan Schneiderlin eru ekki með í för að þessu sinni. Ljóst er að Mourinho vill veita sumum þeirra hvíld fyrir leikinn mikilvæga við Tottenham á sunnudaginn.

Chris Smalling og Luke Shaw verða ekki heldur með annað kvöld en þeir eru frá keppni vegna meiðsla.

Eric Bailly er hins vegar í hópnum, líkt og gegn Everton um síðustu helgi, en hann er að komast af stað á ný eftir meiðsli.

Leikmannahópurinn: De Gea, Romero, Johnstone; Fosu-Mensah, Jones, Bailly, Rojo, Blind, Young; Fellaini, Herrera, Pogba, Lingard, Mata, Mkhitaryan; Martial, Rashford, Rooney, Ibrahimovic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert