Gerrard snýr aftur til Liverpool

Steven Gerrard er goðsögn hjá Liverpool og er nú kominn …
Steven Gerrard er goðsögn hjá Liverpool og er nú kominn aftur. AFP

Goðsögnin Steven Gerrard er kominn aftur til Liverpool – ekki þó sem leikmaður heldur mun hann starfa í unglingaakademíu félagsins.

Hann mun sinna þar ýmsum störfum sem snúa að akademíu Liverpool auk þess að sinna þjálfun, en hann mun hefja störf í næsta mánuði. Gerrard lagði skóna á hilluna seint á síðasta ári eftir að hafa lokið ferlinum með Los Angeles Galaxy.

Gerrard er 36 ára gamall og spilaði á sínum tíma 710 leiki fyrir Liverpool, áður en hann hélt til Bandaríkjanna árið 2015. Hann er goðsögn hjá félaginu og sjálfur er hann ánægður með endurkomuna.

„Þetta er eins og að loka hringnum. En þetta er ekki bara tilfinningalegt, heldur tel ég mig hafa mikið fram að færa. Ég þarf ekki að útskýra hversu mikið þetta félag snertir mig en þegar ég vissi að möguleikinn var til staðar að koma aftur vildi ég vera viss um að ég gæti komið með eitthvað að borðinu,“ sagði Gerrard.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert