Rooney ekki valinn í hópinn

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney var ekki valinn í leikmannahóp Manchester United sem mætir franska liðinu Saint-Étienne í síðari viðureign liðanna í Evrópudeildinni í knattspyrnu á morgun.

Rooney sneri aftur til æfinga hjá Manchester-liðinu í dag en meiðsli hafa haldið honum frá leikjum liðsins frá því um mánaðamótin.

Eftir æfinguna í dag valdi José Mourinho 20 manna hóp og Rooney er ekki í þeim hópi frekar en þeir Luke Shaw og Matteo Darmian. Phil Jones er meiddur og þá tekur spænski miðjumaðurinn Ander Herrera út leikbann en United vann fyrri leikinn á Old Trafford í síðustu viku, 3:0.

Leikmannahópur United lítur þannig út: De Gea, Romero, O'Hara, Valencia, Smalling, Bailly, Rojo, Blind, Young, Fosu-Mensah, Carrick, Pogba, Fellaini, Schweinsteiger, Mata, Martial, Lingard, Mkhitaryan, Ibrahimovic, Rashford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert