Daninn Christian Eriksen í liði Tottenham skaut íslenska landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni, leikmanni Swansea og fyrrverandi liðsfélaga Eriksens hjá Tottenham, ref fyrir rass í 4:0 stórsigri Tottenham á Stoke í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Fyrir leikinn var Gylfi Þór á toppi stoðsendingalistans með 9 stoðsendingar, ásamt Kevin de Bruyne hjá Manchester City.
Fyrir leikinn hafði Eriksen einnig 8 stoðsendingar en hann lagði upp annað og þriðja mark Tottenham og kom sér þannig í 10 stoðsendingar og vermir þar með einn síns liðs toppsæti listans.