Fleiri vondar fréttir úr herbúðum Arsenal

Petr Cech.
Petr Cech. AFP

Petr Cech aðalmarkvörður Arsenal verður frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla í kálfa sem hann varð fyrir í tapi Arsenal gegn WBA í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Cech á þar með á hættu að missa af leik sinna mann gegn Manchester City í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar sem fram fer á Wembley þann 22. apríl.

Kólumbíumaðurinn David Ospina mun taka stöðu Cech í næstu leikjum en allt hefur gengið á afturfótunum hjá Lundúnaliðinu síðustu vikurnar en það hefur tapað sex af síðustu níu leikjum sínum í öllum keppnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert