Jóhann og Gylfi spiluðu báðir í dag

Gylfi með boltann í dag.
Gylfi með boltann í dag. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson og Gylfi Þór Sigurðsson spiluðu báðir með liðum sínum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en lokaumferðin var þá spiluð. Gylfi spilaði allan leikinn fyrir Swansea sem hafði betur gegn WBA, 2:1, og Jóhann spilaði síðustu 23 mínúturnar fyrir Burnley sem tapaði fyrir West Ham með sömu markatölu.

Swansea fór upp í 15. sæti með sigrinum og upp fyrir Burnley sem endar í 16. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert