Defoe í viðræðum við Bournemouth

Jermaine Defoe.
Jermaine Defoe. AFP

Framherjinn Jermaine Defoe er í viðræðum við enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth ef marka má frétt Sky Sports. Defoe er sem stendur í herbúðum Sunderland en hann má yfirgefa félagið, án þess að önnur félög þurfi að greiða fyrir hann. 

Defoe var með klásúlu í samningi sínum sem gerir það að verkum að önnur félög mega ræða við hann og fá hann án greiðslu, ef Sunderland félli úr ensku úrvalsdeildinni. Sunderland borgaði sex milljónir punda fyrir Defoe á sínum tíma. 

Hann skoraði 15 mörk fyrir Sunderland á leiktíðinni og hefur West Ham einnig verið nefnt til sögunnar sem hugsanlegur næsti áfangastaður Defoe. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert