Alderweireld lengur frá en haldið var

Toby Alderweireld meiddist í leik gegn Real Madrid.
Toby Alderweireld meiddist í leik gegn Real Madrid. AFP

Toby Alderweireld, varnarmaður Tottenham, verður frá keppni þangað til í febrúar vegna meiðsla í læri. Fyrst var búist við að Hollendingurinn yrði klár í byrjun næsta árs, en meiðslin eru alvarlegri en haldið var í fyrstu. 

Hann missir því af gríðarlega mikilvægum leikjum gegn Manchester United, Liverpool, Arsenal og fyrri leik liðsins gegn Juventus í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert