Kórónuveirusmit hjá Liverpool

Ónefndur leikmaður Liverpool er með kórónuveiruna að sögn The Mirror.
Ónefndur leikmaður Liverpool er með kórónuveiruna að sögn The Mirror. AFP

Ónefndur leikmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool greindist með kórónuveiruna á æfingaferðalagi liðsins í Austurríki. Félagið hefur sjálft ekki staðfest tíðindin en The Mirror greinir frá. 

Leikmannahópur og þjálfarateymi Liverpool mætti til Austurríki á föstudag og hafa allir innan félagsins farið reglulega í skimun fyrir veirunni. Þrátt fyrir fregnirnar verða engar breytingar gerðar á ferðahögum Liverpool og munu leikmenn áfram æfa í útjaðri Salzburg. 

Enska félagið er einangrað í Austurríki, með heilt hótel fyrir sig og fjarri almenningi. Verður sá smitaði skimaður aftur til að ganga í skugga um að prófið hafi verið jákvætt. Reynist það jákvætt í annað sinn verður hann sendur í einangrun í minnst sjö daga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert