Nálægt því að skrifa undir hjá Manchester United

Dean Henderson
Dean Henderson AFP

Enski markvörður­inn Dean Hend­er­son er búinn að kveðja Sheffield United eftir tveggja ára lánsdvöl þar og er nú nálægt því að skrifa undir nýjan samning hjá Manchester United, þar sem hann hefur verið á mála síðan 2011 eða þegar hann var 14 ára gamall.

Henderson varði mark Sheffield í B-deildinni og hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild. Hann var svo stórgóður með liðinu í úrvalsdeild á síðustu leiktíð en hann er 23 ára gamall.

Sky Sports segir nú frá því að hann ætlar að skrifa undir nýjan langtímasamning í Manchester og berjast við David de Gea um markvarðarstöðu liðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert