Plan þjálfarans út í sandinn vegna Liverpool-mannsins

Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold. AFP/Peter Powell

Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu, ætlaði að prófa Trent Alexander-Arnold, lykilmann Liverpool, í nýrri stöðu fyrir vináttulandsleiki gegn Brasilíu og Belgíu á næstu dögum. 

England mætir Brasilíu og síðan Belgíu í tveimur vináttulandsleikjum á Wembley 23. og 26. mars. 

Enskir miðlar greina nú frá því að Southgate ætlaði að prófa Alexander-Arnold á miðjunni ásamt Declan Rice og Jude Bellingham en að sú áætlun hafi runnið út í sandinn vegna meiðsla Liverpool-mannsins. 

Alexander-Arnold hefur verið í mun minna hlutverki hjá enska landsliðinu heldur en Liverpool en áður hefur verið rætt um hvort að hann myndi nýtast betur á miðjunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert