Leikmaður Liverpool skoraði tvö

Harvey Elliott skoraði tvö.
Harvey Elliott skoraði tvö. AFP/Paul Ellis

Enska U21 árs landsliðið í fótbolta vann sannfærandi 5:1-útisigur á Aserbaídsjan í undankeppni EM í dag.

Harvey Elliott, leikmaður Liverpool, kom enska liðinu á bragðið á 25. mínútu og aðeins fjórum mínútum síðar bætti Noni Madueke úr við öðru marki enska liðsins.

Jaden Philogene, leikmaður Hull í B-deildinni, gerði þriðja markið á 52. mínútu og Elliott bætti við öðru marki sínu og fjórða marki enska liðsins á 67. mínútu.

Varamaðurinn Archie Gray, leikmaður Leeds, gerði fimmta markið á 88. mínútu, tveimur mínútum eftir að varamaðurinn Ramin Nasirli skoraði mark Aserbaídsjan.

England er á toppi riðilsins með 15 stig, en Úkraína er einnig með 15 stig og á leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert